Um dreifingarsvið

Um dreifingarsvið

Dreifingarsvið Olíudreifingar annast móttöku, geymslu og afgreiðslu á fljótandi eldsneyti fyrir N1 hf. og Olíuverslun Íslands hf. Um 80 starfsmenn vinna á dreifingarsviði Olíudreifingar við skipulagninu, bókhald, akstur, í birgðastöðvum og á afgreiðslubát félagsins.

Auk þess að annast meðhöndlun á fljótandi eldsneyti annast sviðið söfnun og meðhöndlun úrgangsolía á landsvísu í samstarfi við aðra aðila.  Jafnframt er gerður út olíubáturinn Laugarnes sem sér um stærri afgreiðslur í skip og báta innan hafna í Reykjavík og Hafnarfirði auk þess sem hann er notaður í birgðaflutninga á ströndina þegar þess gerist þörf.

Árlega meðhöndlar félagið um 500 milljón lítra fyrir eigendur sína og annast um  130.000 afgreiðslur. Afgreiðslurnar eiga sér stað um allt land í gegnum dreifingarnet Olíudreifingar sem nær til alls landsins.  Til að leysa þetta verfkefni rekur félagið 29 birgðastöðvar, 50 olíubíla, afgreiðslubát og strandflutningaskip

 

 
 

Eigendur Olíudreifingar

Olís N1 G. Hannesson


Þetta vefsvæði Byggir á Eplica


 
efnisyfirlit síðunnar