Bílafloti
Bílafloti
Olíudreifing hefur til ráðstöfunar 55 bíla sem bera frá 10.000 ltr. upp í 41.000 ltr. til að annast afgreiðslur á landsvísu. Um helmingur bílaflotans er staðsettur í Reykjavík og nágrenni en hinn helmingurinn er dreifður um landið.
Þróunin síðustu ár hefur verið að bílunum fækkar og þeir stækka. Þegar félagið tók til starfa 1. janúar 1996 voru Olíufélagið og Olíuverslun Íslands með samtals 125 bíla í sama verkefni. Þeim síðan niður í 55 m.a. vegna sameiningu dreifikerfana og að kröfur til bílanna hafa aukist í kjölfar upptöku evróputilskipunar um flutning á hætulegum varningi sem leitt hafa til aukins kostnaðar. Við þessu hefur verið brugðist m.a. með fækkun bifreiða og betri nýtingu.



