Skilmálar
Móttökuskilmálar vegna móttöku úrgangsolíu:
1. Með úrgangsolíu er átt við dælanlegan olíuúrgang, með blossamark >100¨C sem ekki inniheldur önnur efni en sem falla til við eðlilega notkun olíunnar. Úrgangsolía má ekki innihalda uppleysiefni, þynna eða aðrar óskilgreindar efnavörur.
Í úrgangsolíu má ekki vera meira af eftirtöldum efnum en:
Kadmíum < 1 mg / kg Kvikasilfur < 0,5 mg / kg
Blý < 50 --- --- Króm < 50 --- ---
Nikkel < 100 --- --- PCB < 50 --- ---
Halogenar < 1000 --- --- Brennisteinn < 15000 --- ---
Kopar < 100 --- --- Vanadíum < 200 --- ---
2. Móttökuaðili tekur á móti úrgangsolíu frá skilaaðila á virkum dögum
frá kl. 8.00 til 17.00.
Lágmarksmagn sem móttökuaðili sækir til skilaaðila er 400 ltr.
Undanþegin þessu ákvæði eru sveitarfélög og hafnir. Til þeirra er sótt úrgangsolía a.m.k. einu sinni á ári, óháð magni.
3. Panta skal móttöku með a.m.k. 24 klst.fyrirvara. Skilaaðili skal ávallt leitast við að hafa sem mestan fyrirvara á þjónustubeiðni til að unnt sé að sameina söfnun frá honum við aðrar móttökur. Við pöntun skal tilgreina áætlað magn og um hverskonar úrgangsolíu er að ræða.
4. Við móttöku skulu móttökuaðili og skilaaðili fylla út móttökuskýrslu, þar sem fram koma upplýsingar um magn, innihald og uppruna, og staðfesting skilaaðila á að ekki séu óleyfileg efni í úrgangsolíunni. Báðir aðilar undirrita skýrsluna, til staðfestingar, og fær skilaaðili afrit af henni.
5. Leiki vafi á, um innihald úrgangsolíunnar, getur móttökuaðili krafist þess að gerð sé á henni efnarannsókn. Komi í ljós að að hún uppfylli ekki skilyrði sem sett eru getur hann hafnað móttöku.
6. Móttökuaðili tekur á móti úrgangsolíu úr þar til gerðum úrgangsolíugeymum skipa og stöðva í landi en ekki úr öðrum rýmum. Landstöð er þó heimilt að safna úrgangsolíu á tunnur 200 lítra.
7. Móttökuaðili tekur við úrgangsolíu frá skipum við skipshlið á aðgengilegum stað. Góður aðgangur skal vera að stút ofan þilja og skal skipið dæla úrgangsolíunni frá borði, skv. reglum umhverfisráðuneytis. Dæluafköst skulu vera a.m.k. 40 ltr./mín.
8. Hjá skilaaðilum í landi skal vera góður aðgangur að úrgangsolíugeymi eða stút á lögn frá honum og ekki meira en 10 metra fjarlægð frá bílastæði, sem aðgengilegt er fyrir móttökuaðila. Sé úrgangsolíugeymir ekki til staðar skal úrgangsolían vera á 200 lítra tunnum og þær staðsettar á aðgengilegum stað.
9. Skilaaðili skal sjá til þess að ekki sé óbundið vatn með úrgangsolíunni.



