Þjónustudeild

Þjónustu- og tæknisvið

Á þjónustu og tæknisviði starfar hópur tækni- og fagmanna með mikla og fjölbreytta þekkingu og reynslu á mismunandi fagsviðum.

Megin verkefni eru þjónusta við afgreiðslustöðvar og viðskiptavini móðurfélaganna og dreifingarsvið Olíudreifingar, í hönnun, uppbyggingu, eftirliti og viðhaldi sérhæfðs búnaðar til geymslu, meðhöndlunar og afgreiðslu eldsneytis.

Þar er fyrst og fremst um að ræða eldsneytisgeyma, dælu- og afgreiðslubúnað, eldsneytis-og raflagnir, og ýmsan sérhæfðan búnað á bensínstöðvum og í birgðastöðvum. Einnig er rekið bifreiðaverkstæði þar sem fram fara allar almennar bifreiðaviðgerðir ásamt ísetningu og viðgerð á dælu og afgreiðslubúnaði tankbifreiða.

Auk þessa er sinnt þjónustu við verkstæði og smurstöðvar varðandi smurtæki, bílalyftur, loftpressur, bílaþvottavélar o.m.fl.

Hópur starfsmanna er þjálfaður til að bregðast við mengunarslysum og öðrum óhöppum sem upp geta komið við meðhöndlun eldsneytis.

 
 



 

Eigendur Olíudreifingar

Olís N1 G. Hannesson


Þetta vefsvæði Byggir á Eplica


 
efnisyfirlit síðunnar