Gæðastefna ODR
Gæðastefna
Olíudreifing ehf. er leiðandi fyrirtæki í olíudreifingu á Íslandi og lítur á það sem skyldu sína að veita þá þjónustu sem óskað er á sem hagkvæmastan hátt í öllum þáttum rekstrar
Olíudreifing ehf. áformar að framfylgja ofangreindri stefnu á eftirfarandi hátt:
- Með því að kanna með skipulegum hætti ástand gæðamála innan fyrirtækisins.
- Með því að taka upp og viðhalda þeim vinnubrögðum og verklagsreglum sem gæðakerfi fyrirtækisins í samræmi við kröfur ISO 9001:2008.
- Með símenntun og þjálfun starfsmanna.
- Með reglulegum starfsmannafundum.
- Með úrbóta- og umbótaverkefnum þar sem við á.
- Með reglulegri endurskoðun á starfsaðferðum og stefnu.
- Með því að uppfylla þær kröfur í gæðamálum sem alþjóða olíufélög gera til félagsins.
Þar sem árangur á sviði gæðamála er ekki síst háður jákvæðu viðhorfi starfsmanna er nauðsynlegt að tryggja að allir starfsmenn séu meðvitaðir um gæðastefnu fyrirtækisins og markmiðum hennar. Olíudreifing ehf. leggur því áherslu á að upplýsa starfsmenn og skapa jákvæð viðhorf meðal þeirra gagnvart stefnu og markmiðum fyrirtækisins í gæðamálum.
Olíudreifing ehf. fylgir þeim lögum og reglugerðum er lúta að gæðamálum hér á landi.



