Umhverfis- og öryggisstefna
Umhverfis- og öryggisstefna Olíudreifingar ehf
Olíudreifing ehf. er leiðandi fyrirtæki í olíudreifingu á Íslandi og lítur því á það sem skyldu sína að tryggja öryggi starfsmanna sinna og annarra, jafnfram því að tekið sé tillit til hinnar viðkvæmu náttúru. Olíudreifing ehf. einsetur sér að haga rekstri sínum þannig að öryggi starfsmanna og utanaðkomandi aðila verði á sem bestan hátt tryggt, með það að markmiði að lágmarka vinnuslys og óhöpp. Að tryggja öryggi mannslífa kemur framar öllum öðrum aðgerðum. Olíudreifing einsetur sér að ganga vel um náttúruauðlindir jarðarinnar og haga rekstri sínum svo að sem minnst röskun verði á náttúru og lífríki, með það að markmiði að útiloka neikvæð áhrif á umhverfið frá starfsemi fyrirtækisins.
Olíudreifing ehf. áformar að framfylgja ofangreindri stefnu á eftirfarandi hátt:
- Með því að kanna með skipulegum hætti ástand öryggis- og umhverfismála innan fyrirtækisins.
- Með því að taka upp og viðhalda þeim vinnubrögðum og verklagsreglum sem öryggis- og umhverfisstjórnunarkerfi fyrirtækisins krefjast.
- Með símenntun og þjálfun starfsmanna.
- Með reglulegum starfsmannafundum.
- Með úrbóta- og umbótaverkefnum þar sem við á.
- Með reglulegri endurskoðun á starfsaðferðum og stefnu.
- Með að innleiða og viðhalda vottuðu öryggisstjórnunarkerfi í skiparekstri félagsins í samræmi við ISM kódann.
- Með því að uppfylla þær kröfur í umhverfis- og öryggismálum sem alþjóða olíufélög gera til félagsins.
Þar sem árangur á sviði öryggis- og umhverfismála er ekki síst háður jákvæðu viðhorfi starfsmanna er nauðsynlegt að tryggja að allir starfsmenn séu meðvitaðir um öryggis- og umhverfismálastefnu fyrirtækisins og markmiðum hennar. Olíudreifing ehf. leggur því áherslu á að upplýsa starfsmenn og skapa jákvæð viðhorf meðal þeirra gagnvart stefnu og markmiðum fyrirtækisins í öryggis- og umhverfismálum.
Olíudreifing ehf. fylgir þeim lögum og reglugerðum er lúta að öryggis- og umhverfismálum hér á landi.
Reykjavík 19. maí 2003
framkvæmdastjóri



