Ráðgjöf og hönnun
Olíudreifing veitir viðskiptavinum sínum faglega ráðgjöf og býður upp á hönnun og sérhæfða þjónustu þegar kemur að umhverfismálum og leyfisveitingum.

Tæknisvið Olíudreifingar hefur það hlutverk að veita tæknilega ráðgjöf bæði innan félagsins og utan. Á tæknisviði starfa sérfræðingar sem hafa víðtæka þekkingu á rafmagnskerfum og vélbúnaði. Kjarnaþekking tæknisviðs er á sviði búnaðar ýmiss konar og kerfa tengdum birgðageymslu og afgreiðslu eldsneytis.
Hönnun birgðageymslu eldsneytis
- Hönnun lagnakerfa fyrir eldsneytisafgreiðslu
- Hönnun stjórnkerfa fyrir birgðageymslu og eldsneytisafgreiðslu
- Hönnun kerfa fyrir vöktun á birgðageymslu og eldsneytisafgreiðslu
- Gerð kostnaðaráætlana
- Gerð útboðsgagna
- Innkaup á búnaði og kerfum
- Verkefnastýring og/eða hönnunarstjórnun
- Verkeftirlit
- Gerð reyndarteikninga
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við tæknisvið í síma 550 9900.